Amma og Afi kynntust í sveitinni fyrir um 80 árum. Afi var fæddur 1908 en amma 1911. Amma bjó í Forsæti en afi í Ferjunesi, svo það var stutt á milli þeirra, ekki nema um 800 metrar. Oft hittust þau á miðri leið, þegar þau voru að byrja að vera saman, einnig fóru þau oft í reiðtúra um sveitina og stundum sást til þeirra kyssast og knúsast einhverstaðar í guðs grænni náttúrunni:) Það kom svo að því að afi bað ömmu að verða sín að eilífu og hún játti því. Í trúlofunargjöf gaf afi ömmu rauðan fallegann fola, amma lýsti því oft fyrir mér að hún hefði aldrei séð jafn fallegan hest, hann skýrði hún Úða. Tíminn leið og afi og amma gengu í það heilaga 2. maí 1934, þá gekk amma með frumburð þeirra undir belti. Um það leyti sem þau giftu sig var hesturinn sem afi hafði gefið ömmu orðin skjanna hvítur, og enn fallegri en áður. Þau eignuðust síðan í september sama ár fyrsta barnið sitt dreng sem var skýrður Eiríkur. Amma var þá flutt að Ferjunesi og tók við búinu af langafa mínum honum Eiríki ásamt afa. Árin liðu og fjölskyldan tók að stækka á ný, annar drengur leit dagsins ljós, hann var nefndur Kristján. Síðsata barn þeirra kom svo í heiminn 7 maí 1944 og þá var á ferðinni hann pabbi minn:) Þegar pabbi var um tveggja ára aldurinn þá byggðu amma og afi sér nýtt hús, færðu bæinn fjær ánni sem af kappi braut niður bakka sína svo hún færðist nær og nær bænum, í þessu sama húsi bjuggu þau svo í ævilangt. Árin liðu og alltaf voru þau jafn hamingjusöm, þau voru dugnaðarforkar, góðir bændur, miklir dýra vinir. Amma var mjög hagmælt og hefur hún gefið út 2 ljóðabækur, af ljóðunum hennar má lesa hvað það hefur allt verið gott og allir hamingjusamir. Þegar aldur tók að færast á fékk amma mikinn og slæman asma og margir héldu að það myndi draga hana til dauða fyrir um 30 árum, en amma var alltaf sterk svo hún harkaði það af sér og lifði með asmanum til dauðadags. Þegar á leið tóku synirnir við búinu og byggðu bæði pabbi og Kristján sér hús. Við barnabörnin tókum svo að týnast í heiminn;) Húsið hjá ömmu og afa var einskonar félagsmiðstöð fyrir okkur krakkana, þangað var alltaf hægt að leita með hvaða vandamál sem var eða bara ef manni einfaldlega leiddist. Þar inni gat ég hangið dögunum saman, leikið mér í legó, lært hjá ömmu, fengið að heyra einhverja spennandi sögu eða bara spjalla um lífið og tilveruna við þau, þau voru dásamleg besta fólk sem ég hef um ævina fengið að kynnast. Því miður náði ég ekki að vera mikið hjá afa síðusta mánuðina hans þar sem ég var útí London. Afi lést svo á Sjúkrahúsinu á Selfossi 27. nóvember, eftir 3 vikna legu þá 98 ára gamall. Ammavar mjög sorgmædd eftir að afi dó, hún var einnig orðin töluvert kölkuð og tuðaði oft yfir því að hann Mundi(afi) hafi skilið sig eftir því þau hefðu alltaf fylgst að. Í fyrradag var svo farið með ömmu uppá sjúkrahús því hún átti orðin svo erfitt með að anda, líklega útaf asmanum. Í gær kíktum við mamma svo á hana uppá spítala, þar var sú gamla hress og kát og reitti svoleiðis af sér brandarana eins og henni var einni lagði við sátum hjá henni í 45 mínúntur, við knúsuðum hana og kysstum og okkur var heldur létt að sjá hana svona hressa. En svo um miðnætti í gær var hringt þá var hún amma farin yfir í betri heim. Það var hjúkrunarkona sem sat hjá ömmu þegar hún dó, hún sagði okkur hvernig þetta hefði verið, hún sagðist aldrei hafa upplifað annað eins. Hún sat hjá ömmu og hélt í hendina á henni, þær voru bara að spjalla og amma var að fara með gamlar vísur, allt í einu spyr amma hvort afi væri dáinn? hjúkkan svaraði því, þá sagði amma víst að nú væri eitthvað að gerast, því að afi væri kominn til sín svo lokaði hún augunum brosandi og dó. Afi kom semsagt að sækja hana:) Þau voru gift í 73 ár og 209 daga þegar afi dó og voru ekki aðskilin í nema tæpa 5 mánuði og nú eru þau saman á ný!:) Aðeins 7 íslenskhjón hafa verið gift legnur en þau.
Ég á óteljandi dýrmætar minningar um elsku ömmu Oddný og Afa Ásmund sem ég mun aldrei gleyma, ég er mjög þakklát fyrir þau forréttindi að hafa fengið að kynnast þeim og alast upp með þau í mínu lífi. Ég er einnig stolt af því að fá að bera bæði nafnið hennar ömmu og afa. Elsku amma og afi þið eruð mínar hetjur og helstu fyrirmyndir og ég ætla að setja mér þau markmið að reyna verða jafn góð manneskja eins og þið voruð þó svo að ég held að það verði erfitt.
Ég ætla að ljúka þessum pistli á orðum sem að fylgdu alltaf þegar ég kvaddi ömmu, "Guð eigi þig og styrki elsku Ása mín".
Hvíl í friði ég á sko sannarlega eftir að sakna ykkar..:*
Kveðja Ykkar Oddný Ása
06. maí 2007 klukkan 02:35
Oddný Ása Ingjaldsóttir 8 athugasemdir
Ákvað aðeins að láta í mér heyra...Ég er s.s ennþá á lífi:p..hehe...Er bara ekki búin að nenna að blogga neitt, enda voða lítið að frétta,,,er bara að nördast í skólanum, svo þegar ég nenni þá vinn ég aðra hverja helgi í húsó og svo einu sinni í viku förum við Unnsa í það að þjálfa Boccia þó svo að við kunnum það ekkert:P hehehe en það er samt bara gaman:) svo er það bara pakkhúsið um helgar;) hvað annað?? ekkert annað að gera hérna selFossinum, frekar lélegt....prófin fara að smella og sumarfríið fylgir stíft á eftir því...Stefnir í alveg þrusu gott sumar, endalausar útilegur og skemmtun:) í ágústbyrjum ætla ég svo að skella mér til minna heittelskuðu Eyja, og liggja þar í íbúð í heila 5 daga:) ætla sko ekki að missa af neinu þar sem ég fór ekki síðast;) hehe...Ég keypti mér brumma í febrúar og varð alveg 19 ára í mars og hélt uppá það með bleikubarbie þema bara snilld, fékk frábærar gjafir þar á meðal var sú besta án efa að fá hana Herdísi mína í smá heimsókn:) Bústaðarferðin okkar í Djúsanda var geðveik!..Þorrablótið var alger snilld og páskafríið MJÖG blautt þrátt fyrir mikið þurrkaveður;) hehe djók...Ég er farin að sakna London og strákanna svo mikið, langar að fara að kíkja í smá heimsókn út! Kíkja á alla þar sem ég þekki, fá mér starbucks, fara á uppáhaldsveitingastaðinn minn og ekki má gleyma að kíkja á djammið!!!:) En ætla að láta þetta gott heita í bili..Það eru alveg fullt af nýjum og skemmtilegum myndum inná www.blog.central.is/djusandi endilega kíkja:) læt nokkrar góðar fylgja;)
Leiter.......Ykkar Oddný Ása ;)
Barbie-afmælið góða:) Alltaf fjör í keilu:) London-stelpurnar Keilumeistarinn sjálfur..:) Bústaðurinn :) Sætar;) hehehe
bleeee....
16. apríl 2007 klukkan 18:48
Oddný Ása Ingjaldsóttir 2 athugasemdir
Held að ég hafi sjaldan verið jafn stolt að strákunum okkar!! Hafði sko ekki mikla von á því að þeir myndu vinna Frakkana en þeir sýndu það svo sannarlega í þessum leik að það eru fá lið sem þeir geta ekki lagt!!! :D
Áfram Ísland!!!!!!!!!
Langflottastir!!....
23. janúar 2007 klukkan 03:06
Oddný Ása Ingjaldsóttir 3 athugasemdir
Letin alveg að drepa mig nenni ekki að blogga neitt sérstakt...Skólinn byrjarður á ný eftir hreint frábært jólafrí...Skammdegið og hversdagsleikinn hellstur yfir..og ekki nóg með það, þá þarf þessi ógeðis snjór og kuldi líka að vera að pirra mig..:(...en það þýðir víst ekkert að leggjast í þunglyndi yfir því heldur gera bara eitthvað skemmtó...:) Ég er búin að brjóta öll loforð og heit um að vera róleg í janúar í djamminu og djúsinu...en það var bara ekki alveg að gera sig...Ég er búin að vera rosa dugleg í því, skellti mér meðal annars á hattaball, Rvk-ur djamm, og ekki má gleyma hinum geysivinsæla skemmtistað Selfossbæjar, Pakkhúsið, maður er aðeins búin að fara þangað og ég er ekki frá því að ég sé komin með nett ógeð:P....en er að spá í að hafa þetta svona meira myndablogg því að ég nenni ekki að blogga neitt...eða hef bara ekkert til að blogga um:P....Hér koma allavegana nokkrar sniðugar myndir af síðasta ári og nokkrar nýjar kannski;).....
Stelpuskottin Fanney og Unnur að útskrifast... Klikkað gaman:) Ég og Kolla kátar á djamminu í London í sumar:)
Litlu dúllurnar, Kalli og Óðinn:* Ásmundur bró og Óli bró komu í heimsókn til mín..þarna eru þeir fyrir utan heima hjá mér:)
Strákarnir í London:) á Victoria Street...
Skemmtilega hreyfð mynd af höllinni:) ása pjása og ási pjási;)
Heimsókn á klakann 7 des:) Jólasystkinamynd;) strákarnir gátu náttlega ekki verið eðlilegir:P Freyja Kristín sætust:* Ég og Steinunn kátar á Spotaranum í London:) Djúsandaútilegan í sumar:)
Æjjj nenni ekki meir.....btw það eru komnar fullt af nýjum myndum hérna inná svo að þið getið bara skoðað þær....svo er meira á leiðinni svona á næstunni þegar tölvu greyið mitt kemur úr aðhlynningu;)
24. dagar í bústað...:)
L8er.....Odda Podda:)
17. janúar 2007 klukkan 05:13
Oddný Ása Ingjaldsóttir 2 athugasemdir
Jæja þá er ég bara mætt heim í Nesið og búin að vera í meira en viku...:) Ótrúlega gott að vera komin heim til að vera, þó svo að ég eigi eftir að sakna London mikið...Ég er ekki búin að klikka á aðalatriðunum og búin að standa mig vel í djamminu á Selfossinu og eins og gengur og gerist voru þau misskemmtileg;) hehe;);) btw það er ekki gaman að festa sig á hringtorginu!! En nú er bara komið gamlárskveld og þetta síðasta færslan á árinu..Djamm í natten;) Sjáumst þar...
Að lokum vil ég óska öllum Gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það gamla;*;*
L8ter
Oddný Ása
01. janúar 2007 klukkan 00:19
Oddný Ása Ingjaldsóttir 3 athugasemdir
Fyrir 31 viku síðan lagði ég uppí ferðalag. Ferðinni var heitið til London,nánar tiltekið Bromley South, að passa krakka. Ég tók við af Iðunni frænku minni, að passa tvo yndislega stráka hjá alveg hreint frábærum hjónum sem vildu og vilja allt fyrir mig gera! Upprunalega ætlaði ég bara að vera í 3 mánuði en þar sem mér leið bara svo vel hérna þá ákvað ég að vera bara lengur fram á haustið og ákveða svo í október hvað ég vildi gera, svo í október þá ákvað ég bara að vera fram að jólum! Og núna er ég búin að vera hér í tæpa 8 mánuði og er að vellta því fyrir mér hvort ég hefði kannski bara átt að vera pínu lengur? En ég held að þetta sé bara komið nokkuð gott í bili. Þessi tími er búinn að vera frábær! Búin að kynnast gommu af hressu og skemmtilegu fólki, skoða London vel, versla frá mér allt vit og djamma af mér rassgatið! Já ég er sko sannarlega búin að njóta þess að vera hérna og vildi sko ekki hafa misst af því að upplifa þetta!
Nú er ég búin að pakka flest öllu sem ég á, ekki nema 4 stórar ferðatöskur og handfarangur! Við systkinin erum bara að býða eftir leigubílnum:/ Ótrúlega skrítið að vera að fara alveg! hugsa til þess að koma ekki aftur eftir jólin bara búin í fríi og fara að fara aftur með Óðinn í skólann og nöllast eitthvað í London...En það verður líka ótrúlega gott að koma heim í faðm allra þar sem manni þykir óendanlega vænt um.. Jémm er sko búin að ákveða að kíkja hingað út aftur um páskana! hver vill memm??;)
En já ætla bara að láta þetta gott heita. Og af því að ég veit að Ásta kíkir stundum á bloggið...TAkk fyrir MIG!!!:* ´Á sko eftir að sakna ykkar allra!!
BÆ LONDON
:'(
Sé ykkur sem heima sitjið í kveld eða á morgun;) hlakka bara til;*
Kv Oddan;)
20. desember 2006 klukkan 21:55
Oddný Ása Ingjaldsóttir 3 athugasemdir
....Maður er sko ekki að standa sig sem stendur í þessu blessaða bloggi...En hvað um það. Íslandsförin var bara nokkuð góð, þó svo að jarðaförin hafi verið nokkuð erfið:/ en það var frábært að hitta svo alla í fjölskyldunni á eftir í erfidrykkjunni, Hitti líka flestar stelpurnar nema próflesarana;) En já vel heppnuð ferð:)
En nú er bara komin þriðjudagur meira að segja alveg að smella í miðvikudag. Helgin var alveg ljómandi. Á fimmtudaginn náði Auður að draga mig nauðuga út í smá game;) Við skelltum okkur niðrí Croydon auðvitað á walkie, helvíti gaman þar. Fórum reyndar heldur snemma útaf þeim stað og sökum drykkju á einum meðferðarfélaga þá var okkur ekki hleypt inná neinn annann stað:P:P svo að því var bara reddað með eftirpartý og öllum pakkanum svo að við komum ekki heim fyrr en hálf 6:P úff föstudagurinn var líklegast einn af þeim erfiðustu hingað til:P Svo að það var ekkert djamm um kvelið eins og við vorum búnnar að plana!:P hehe... Á laugardaginn komu svo Óli og Ási bró til mín. Við skelltum okkur þann daginn í Camden Town á markaðina þar, um kveldið svo eftir að strákarnir voru búnnir að missa sig í ruglið í Camden og eyða í einhverja vitleysu þá skelltum við okkur í snæðing á Original Hard Rock þar sem Eric Clapton gaf fyrstur hljóðfæri, gítarinn sinn til að fá að halda sínu eigin borði á staðnum þegar hann kæmi þangað, síðan héldu tónlistarmenn þessu bara áfram..Sneddí:)... á sunnudaginn var verslað en bræður mínir settu mig í verslunarbann svo að ég fékk ekkert að kaupa mér, fékk reyndar eitt skópar:P en þeir versluðu frá sér það litla vit sem eftir var! Mánudagurinn fór svo í að sýna örverpinu honum Munda (ása) London, svo að við löbbuðum meiri hlutann af deginum óla bróður til mikillar ánægju:P Heheh...svo var Queensjóið um kveldið aftur, alltaf jafn ógeðslega flott!!!:D Í dag erum við svo bara búin að vera nokkuð slök, kortin búin að fá ágætis hvíld, eru að kólna, en það á ekki að standa lengi með mitt kort ætla sko að ná góðum lokaspretti í búðunum á morgun því að við eigum jaaa gott sem eina tösku eftir tóma!;) til hvers að taka tóma tösku heim!?? Maður spyr sig?? En já... ef að þú hefur ekki áttað þig á því lesandi góður þá er ég að koma HEIM á MORGUN!!!!:D:D:D:D Blendnar tilfinningar í gangi! Svaka spennt að koma heim en er samt orðin smá heimakær hérna líka, á sko eftir að SAKNA London Big time!!;'/ En já ætla ekki að hafa þetta lengra í bili kem með einhvern vælu pistil á morgun;) Ætla að fara og njóta þess að sofa síðustu nóttina mína í London ;)
Londonkveðjur Ykkar ODDA;)
20. desember 2006 klukkan 04:51
Oddný Ása Ingjaldsóttir 2 athugasemdir
Hæ hó bara að láta ykkur vita að ég er að koma heim á morgun Hlakka svo til að koma heim og kúsa ykkur í tætlur Er orðin rosa spennt, á eftir að pakka þannig að.. ætla að skella mér í það verkefni.. sjáumst!! YKKAR ODDAi
07. desember 2006 klukkan 22:17
Oddný Ása Ingjaldsóttir Engin athugasemd
Ákvað að setjast aðeins niður fyrir framan tölvuna og varpa á skjáinn eins og einu litlu bloggi. En svo fór ég að hugsa, og ég hugsaði og ég hugsaði....og ég hugsaði svo mikið að ég fattaði að ég hafði bara ekkert til að skrifa um í þessu litla bloggi...Svo að ég ákvað að segja örlítið frá helginni...Svo að ég hugsaði og ég hugsaði og ég hugsaði og þegar ég var búin að hugsa svoo lengi að´ég var komin með meiriháttar verki í höfuðið, þá fattaði ég að ég man bara ekkert hvað ég gerði um helgina, en svo allt í einu mundi ég það! Svo að þá ákvað ég að skrifa það á bloggið en svo allt í einu þá gleymdi ég því! já þá var ég á flæðiskeri stödd...Svo að ég ákvað að hætta bara að bulla og skrifa bara eitthvað, en þá bara datt mér ekkert í hug...
En svo ef við vindum okkur úr þeim efnunum....Helgin var jaahh ágæt svona það sem ég man;) Á föstudagskveldið ákvað ég að vera heima til að vera sem frískust kveldið eftir, skellti bara mynd í tækið og sofnaði yfir henni.. Á laugardaginn svaf ég alltof lengi þannig að ég vakanði löt og nennti ekki að gera neitt, skellti mér reyndar niðrí bæ aðeins að kíkja í búð;) Um kveldið þegar Auður var búin að vinna var svo stefnan tekin uppí London á tjútt, aldrei þessu vant þá var ég bara varla að nenna út:/ en fór samt...Við skelltum okkur á Walkabout á Leicester Square, þar var fjör að vanda, og drykkja mikil sem var síðar tekin út á forstofugólfinu:P hehehe..Já það var helvíti gaman, skandalar og stór BÖMMER daginn eftir:Phaha:P En já....ætla að henda inná nokkrum myndum :)
4 dagar í sveitina vúú hlakka svo til að koma heim þó að tilefnið sé frekar leiðinlegt:/....
Hér koma nokkrar myndir síðan á laugardaginn... Við Auður helv góðar;)
Græðgi í Auði Glasið var alltaf tómt! Brjáluð stemmning Á barnum...Aldrei þessu vant og ein af mér og Lilju...
Þangað til næst..Hafið það gott og spennið beltin!!:) sjáumst á föstudaginn;*;*
Ykkar Oddur Ási
05. desember 2006 klukkan 03:23
Oddný Ása Ingjaldsóttir 5 athugasemdir
Jæja verð ég ekki að koma með helgarpistil eins og ég lofaði hér fyrir neðan..
Helgin var bara ljómandi góð, kannski ekki peningalega séð þar sem að ég eyddi og eyddi eins og ég fengi borgað fyrir það en það verður bara að hafa það:P
Föstudagur..Hann var bara með slakasta móti þetta skiptið, var að passa til 9 og nennti ekki að gera neitt eftir það, skellti mér á netið og í sófann, fyrir framan tv-ið til skiptis;) Hefði samt örugglega gert eitthvað ef að ég hefði ekki þurft að vakna klukkan 7 daginn eftir...
Laugardagur...Vaknað klukkan 7, var sko ekki að nenna á fætur, en viti menn Oddný fór á lappir og snúzaði ekkert! Um 8 leytið var ég svo að reyna að komast útúr húsinu þegar að Ásta kom hlaupandi niður hálfskelkuð, þá hélt hún að það væri verið að brjótast inn því að henni datt það sko ekki til hugar að ég hefði vaknað sjálf og væri að fara út úr húsi kl 8!!;) EN já ég hefði sko aldrei vaknað svona snemma ef að það hefði ekki verið fyrir það að ég var að fara að VERSLA í Bluewater, stærsta molli á Englandi og fokk það er stórt!! Eins og fyrr segir fór ég að stað kl 8 og hitti Lilju á leiðinni, við tókum svo einhverjar lestar sem að ég man ekkert, var hálf sofandi á leiðinni...En allavegana þá vorum við komnar í Bluewater um 10 leytið og þá hófst peningaeyðslan!! Þetta moll er á 2 hæðum og það er huge við týndumst örugglega svona 5 sinnum þarna inni þá kom sér vel að hafa kort af því;) Við vorum þarna frá 10 og vorum að skríða út drulluþreyttar um 9 leytið:P Bilað!!! En við létum það ekki stopaa okkur í að skella okkur á djammið;) Við vorum heillengi að koma okkur frá mollinu og það tók líka sinn tíma í að græja okkur...þennig að við vorum ekki komnar inní London fyrr en um hálf 2! og það er hætt að hleypa inná flesta staðina um 2, en við komumst inná Walkabout kl 2;) Þá hófst drykkjan, okkur Lilju fannst ekki taka því að sötra bara bjór þennan klukakra sem eftir var svo að við færðum okkur yfir í tequilað;) skelltum 5 skotum og 3 bjórum í okkur á no time og vorum orðnar blekölvaðar;) við dönsuðum svo þangað til okkur var liggur við hent út;) Náðum góðum klukkutíma þar;)
Sunnudagur....Þynnka...:P fórum nú samt út úr húsi:P skelltum okkur niðrí Bromley en nenntum ekki að vera þar lengi svo að við fórum uppá Oxford Street. Eftir smá búðarráp þar hittum við Auði og við ákváðum að fara saman í bíó á The devil wears Prada, ágætis mynd þar á ferð:) Eftir myndina fórum við Auður heim til mín drulluþreyttar...
Mánudagur...Vaknaði klukkan 7 við það að Magga syss var að hringja skildi ekkert í því hvað hún vildi kl 7 en þá var hún að láta mig vita að afi minn í nesinu væri farinn frá okkur yfir í betri heim..Afi kallinn var búinn að liggja á Sjúkrahúsinu á Selfossi í 3-4 vikur, 98 ára, s.s orðinn gamall og þreyttur, fékk sem betur fer að fara án nokkurra kvala..Já en það var frekar leiðinlegt að vakna við þessar fréttir, og vera ein í útlöndum fjarri fjölskyldunni... enn þannig að ég er að koma heim 7 des til að vera vð jarðaförina hjá afa og fer aftur til London 11 desember, verð þá í 9 daga hér, tek á móti bræðrum mínum og svo fer ég for good 20 des... EN þá held ég bara að ég sé gersamlega tóm búin að blaðra öllu á þetta lélega blogg sem hefur gerst hérna hjá mér undanfarið;)
Hvíl í friði elsku besti afi minn;* á sko eftir að sakna þín!
Hlakka til að hitta ykkur og kúsa elsku vinir;*
Ykkar Oddný Ása;**
30. nóvember 2006 klukkan 04:13
Oddný Ása Ingjaldsóttir 5 athugasemdir